
UMHYGGJA
alúð og eftirfylgni

VIRÐING
virk hlustun og hugulsemi

NÆRGÆTNI
traust og teymisvinna
Stoð- og stuðningsþjónusta
Stuðnings- og stoðþjónusta Skjólstaða felur í sér sérhæfða þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers skjólstæðings samkvæmt verkferlum félagsþjónustu sveitarfélaga. Um er að ræða aðlagað verklag vegna fötlunar eða skerðingar, stuðning við notkun hjálpartækja eða sérbúnaðar, stuðning að almennu hreinlæti og dagsdaglegar athafnir. Einnig er lögð áhersla á að vinna eftir einstaklingsmiðaðri stuðningsáætlun og í samvinnu við fjölskyldu og annað fagfólk þegar við á, þannig að þjónustan sé heildstæð, markviss og í samræmi við þarfir einstaklingsins.
Þjónustan felst einnig í að veita einstaklingum markvissan og einstaklingsmiðaðan stuðning með það að markmiði að efla sjálfstæði þeirra, vellíðan og þátttöku í samfélaginu. Mikilvægur þáttur þjónustunnar er félagslegur stuðningur, þar sem einstaklingum er aðstoðað við að taka þátt í félagslífi, tómstundum og samfélagsstarfi, auk þess sem þeir eru hvattir til að mynda og viðhalda félagslegum tengslum. Með þessum hætti er unnið að því að draga úr félagslegri einangrun og efla samfélagsþátttöku.
Annar mikilvægur þáttur þjónustunnar er tilfinningalegur stuðningur, sem felst í að veita örugga nærveru, hlustun, hvatningu og uppörvun í daglegu lífi. Slíkur stuðningur getur hjálpað einstaklingum að takast á við streitu, kvíða eða breytingar í lífinu og stuðlar að aukinni öryggiskennd, sjálfstrausti og stöðugleika.
Markmiðið er að skjólstæðingarnir upplifi sjálfstætt líf eftir sinni getu með aðkomu og utanumhald starfsfólks Skjólstaða.
Fjöldi áætlaðra notenda er ekki takmarkaður sem og aldur skjólstæðinga.

Lifðu í dag,
lærðu af gærdeginum
og vonaðu það besta
um morgundaginn.
Gærdagurinn kemur ekki aftur, morgundagurinn er óskrifað blað, en dagurinn í dag er þinn.
Skjólstaðir ehf. býður upp á búsetuúrræði staðsett eftir þjónustuþörfum skjólstæðings.